Sprauta, kúlur og veiđiferđ.

Eftir að hafa stigversnað frá síðustu færslu ákvað ég seinnipartinn í dag að nóg væri komið og skundaði til læknis í annað sinn á jafn mörgum dögum! Í þetta sinn fékk ég massíva sterasprautu í hendina og þegar þetta er ritað er farið að glitta í Sigrúnu aftur. Að vísu er langt í land, massívir bólgupokar undir augum hafa enn ekki minnkað en mér sýnast örlög mín, að verða útlegi upp á reginfjöllum, vera að fjarlægjast óðfluga. Svei mér þá, ég held að ég komist í vinnuna á morgun! Hlæjandi

Hann Lappi fór í morgun að láta fjarlægja kúlurnar sínar. Ekki sjálfviljugur þó. Það var nú ekkert sérlega ánægjulegt að sækja hann. Hann var ennþá í svæfingu og var steinsofandi með galopin augu og með tunguna út til hliðar. Hreinlega einsog hann væri steindauður. Ég hef verið að passa hann í kvöld því foreldrarnir fóru í veiði. Mér var ekki boðið með, og mig grunar sterklega að ástæðan hafi verið að þau hafi ekki viljað gangast við jafn ófríðu barni opinberlega einsog þau hafa átt síðustu 3 daga. Að vísu fengu bíllyklarnir mínir að fljóta með í ferðina, tiltektarsjúka móðir mín fannst þeir eitthvað draslaralegir á eldhúsborðinu og stakk þeim í vasann. Það fattaðist svo 150 km frá Selfossi í gegnum síma eftir að ég hafði hlaupið um húsið í hálftíma að leita að þeim, ég var sko ekki par ánægð!

Annars er ég hress og kát, sátt og sæl og rosalega steruð og mössuð. Og hef komist að því að karlmönnum þykir vænt um kúlurnar sínar. Allir þeir sem hafa heyrt af því að þær hafi verið teknar og saumað fyrir hjá Lappa greyinu hafa sett upp undarlegan svip og gripið um sínar eigin. Magnað. Ég var bara fegin að losna við mínar á sínum tíma. Glottandi
28. júní 2006 klukkan 03:50
Sigrún Jóhannsdóttir
Jóna Harpa skrifar ...
Æ aumingja Lappi litli..... en gott að heyra að þér er farið að líða betur :)
28. júní 2006 klukkan 16:11
Stebbi skrifar ...
Lappi er einsog liðið lík þessa dagana... kjarkurinn fór með kúlunum, hann þorir ekki upp stigann
29. júní 2006 klukkan 03:15
Sigríđur skrifar ...
Haha... ætli kjarkurinn hennar Sigrúnar hafi ekki líka fokið með hennar kúlum. Allavega virðast þau
jafn lofthrædd! :) Fátt skemmtilegra en að sjá Rúnka veina í brekku.
29. júní 2006 klukkan 19:55

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Könnun

Hver vinnur Rockstar?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...