Harold.
Alveg magnað hvað lífið getur tekið miklum straumhvörfum! Um helgina fannst mér ég í fyrsta sinn orðin gömul. Eins og fram kemur í fréttum voru 70% af þeim sem heimsóttu færeyska daga 16-17 ára og þar með ætti tilgangur þessara orða að vera ljós. En það var þrælskemmtilegt og að sjálfsögðu skipti þar góður félagsskapur höfuðmáli!"Ég er orðin svo full að ég stend ekki í augun!" -Hermína að hrasa lítillega síðla kvölds
"Veðrið er svo gott að það bærist ekki hár á fingri!" -Undirrituð
"Hva, ég hef nú dýpt kleinum og öllum fjandanum í kakóið!" -Undirrituð í "ég hef aldrei"
Einnig kom orðið fermingarsystir fyrir í annarri hverri setningu.
Fleira markvert var: Jónsi í svörtum fötum, það bara er ekki hægt að dásama þann dreng nóg, drama drama drama sem ég varð vitni að seint um nótt og innihélt stelpubarsmíðar og ölvunarakstur, klósettið og sturtan heima hjá Hjalta-badvinir.is
Einnig ber kannski að geta þess að ég er orðin stálslegin í framan og til í tuskið!
03. júlí 2006 klukkan 02:21
Sigrún Jóhannsdóttir
Sigrún Jóhannsdóttir
En rétt er það að var voða úlfúð í fólkinu... er það ekki bara nokkuð smart orð? ;)