Ég bara verđ...

MIG LANGAR SVO MIKIÐ TIL  ÚTLANDA!!! Gráta  HVERNIG GAT MÉR DOTTIÐ ÞAÐ Í HUG AÐ ÞAÐ VÆRI SNIÐUGT AÐ SLEPPA ÞVÍ Í ÁR? TILHUGSUNIN UM SÓL, KOKTEILA OG BÚÐIR ER YFIRÞYRMANDI! Gráta

HÉR MEÐ LÝSI ÉG ÞVÍ YFIR AÐ ÉG ÆTLA Á NÆSTA ÁRI OG ÞAÐ ER EINS GOTT AÐ EINHVERJIR GETI KOMIРMEÐ MÉR! Gráta

ÉG VEIT AÐ ÖLL FÆRSLAN ERU HÁSTAFIR EN ÉG VERÐ BARA AÐ ÖSKRA ÞETTA ÚT EINHVERNVEGINN.Gráta

Kveðja, Sigrún "skynsama" a.k.a. FÁVITI!
09. júlí 2006 klukkan 05:14
Sigrún Jóhannsdóttir
Gunni "101-Rvk" skrifar ...
Bestu kveðjur,
Gunni mallorca-strákur!

húha!

P.s. skoða Oriental Kebab við fyrsta tækifæri... hjá hvaða strandhúsi var það ?
09. júlí 2006 klukkan 17:14
Sigrún skrifar ...
Oh Gunni, ég man það ekki. En mig minnir að það sé nr.15 eða eitthvað svoleiðis. Ef þú biður um taxa að hotel brasilia playa þá er það bara þar fyrir neðan. Ekkert mjög áberandi staður.
09. júlí 2006 klukkan 22:34
Sigríđur skrifar ...
Já og það er páfagaukur í búri við götuna... og sætir gaurar að vinna. Getur ekki farið framhjá þér...Vá ég fæ vatn í munninn við tilhugsunina.

En Sigrún, þú skalt ekki reyna að ljúga því að mér að þú hafir efni á 1 stk. útlandaferð núna. Allavega þyrfti ég að selja bílinn, húsbílinn, íbúðina eða... mig?!?!

Mér finnst fínt að vera heima eitt sumar, ekkert peningastress og vesen. En ég er reyndar búin að fara tvsvar út síðan við fórum til Mallorca þannig að ég er kannski ekki hæf til samanburðar. Það er jú takmarkað hversu lengi maður þolir við á skerinu í einu.
10. júlí 2006 klukkan 15:42
Sigrún skrifar ...
Sko... Þú ert alls ekki hæf til samanburðar. Hvernig helduru að það sé að göslast í grenjandi rigningu með blautan póst dag eftir dag eftir dag. Andinn fer allavega niður eftir hvert skipti og ég fer alveg að komast á núllið. Sérstaklega eftir daginn í dag. Ef einhver hefði hrópað eitthvað að mér þar sem ég var sem blautust í dag þá hefði ég drepið hann.

ÉG ÞARF SÓL!
11. júlí 2006 klukkan 23:27

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Könnun

Hver vinnur Rockstar?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...