Líðanir.

Sum lög eru bara þannig að eina leiðin til að hlusta á þau er að leggjast niður, loka augunum og láta áhrifin af laginu flæða einhvernveginn í gegnum sig.

Þessa dagana eru tvö lög í uppáhaldi,
-Home með Depeche mode
-Walking after you með Foofighters, fann það í fáránlega flottri útgáfu sem fær mig næstum til að tárast.

Eins er þetta með bíómyndir. Þar er komin ástæðan fyrir því hvað ég get horft á Braveheart, Notting Hill, Bridget Jones, Love Actually, Forrest Gump, Shawshank redemption og fleiri og fleiri óeðlilega oft! Bridget kemur mér bara hreinlega alltaf í gott skap. Forrest Gump fær mig alltaf til að meta það sem ég hef aðeins meira. Shawshank redemption er bara einum of góð, og eins Braveheart. Love Actually fær mann til að langa að eiga einhvern einstakan að. Notting Hill fær mig til að langa að eiga Hugh Grant. Hlæjandi Þó svo að ég kunni söguþráðinn aftur á bak og áfram þá skiptir það ekki máli. Það er tilfinningin á bakvið myndina sem skiptir máli.

En að öðru. Mér sýnist á öllu að ég verði meðsöngvari í brekkusöngnum í ár! Ég hlakka ekkert smá til. Verður ÞÚ þar? Glottandi
10. júlí 2006 klukkan 03:51
Sigrún Jóhannsdóttir
Sigríður skrifar ...
Já núna skil þessa þráhyggju hjá þér kannski örlítið betur.... Hugh Grant vekur líka upp gríðarlegar tilfinningar hjá mér...!
10. júlí 2006 klukkan 15:44
Jóna Harpa skrifar ...
Walking after you er náttúrulega bara snilldarlag! Á tímabili dýrkaði ég það svo mikið að ég bjó til spólu sem innihélt bara þetta eina lag! Heil kasetta sem spilaði þetta lag svona 16 sinnum eða e-ð!! Ég á þessa spólu ennþá :p
10. júlí 2006 klukkan 17:30
Guðbjörg skrifar ...
Jóna..ég sagði þér frá þessu lagi ;) haha..er bara að benda þér á það..!! en þetta er satt..heil spóla..bara með þessu lagi.

myndbandið er æði
10. júlí 2006 klukkan 21:03
Már skrifar ...
Ég veit um tiltekin ungan dreng sem verður líka í kórnum í eyjum. Nú er bara að drífa í þessu SIgrún.
11. júlí 2006 klukkan 05:16
Sigríður skrifar ...
Hahahahaha... góður Már.

Boltinn er hjá kórdrengnum... hann verður bara að hrökkva eða stökkva.

Maður eða mús?
11. júlí 2006 klukkan 15:06
Sigrún skrifar ...
Þið eruð svo innilega þroskaheft. Alveg spurning að sækja um í iðjuþjálfun.
11. júlí 2006 klukkan 16:10
Hermina skrifar ...
fyndið.. ég er líka alltaf að hlutsa á walking after you þessa dagana :)
13. júlí 2006 klukkan 01:27

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Könnun

Hver vinnur Rockstar?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...