Sum lög eru bara þannig að eina leiðin til að hlusta á þau er að leggjast niður, loka augunum og láta áhrifin af laginu flæða einhvernveginn í gegnum sig.
Þessa dagana eru tvö lög í uppáhaldi, -Home með Depeche mode -Walking after you með Foofighters, fann það í fáránlega flottri útgáfu sem fær mig næstum til að tárast.
Eins er þetta með bíómyndir. Þar er komin ástæðan fyrir því hvað ég get horft á Braveheart, Notting Hill, Bridget Jones, Love Actually, Forrest Gump, Shawshank redemption og fleiri og fleiri óeðlilega oft! Bridget kemur mér bara hreinlega alltaf í gott skap. Forrest Gump fær mig alltaf til að meta það sem ég hef aðeins meira. Shawshank redemption er bara einum of góð, og eins Braveheart. Love Actually fær mann til að langa að eiga einhvern einstakan að. Notting Hill fær mig til að langa að eiga Hugh Grant. Þó svo að ég kunni söguþráðinn aftur á bak og áfram þá skiptir það ekki máli. Það er tilfinningin á bakvið myndina sem skiptir máli.
En að öðru. Mér sýnist á öllu að ég verði meðsöngvari í brekkusöngnum í ár! Ég hlakka ekkert smá til. Verður ÞÚ þar?
10. júlí 2006 klukkan 03:51
Sigrún Jóhannsdóttir 7 athugasemdir
MIG LANGAR SVO MIKIÐ TIL ÚTLANDA!!! HVERNIG GAT MÉR DOTTIÐ ÞAÐ Í HUG AÐ ÞAÐ VÆRI SNIÐUGT AÐ SLEPPA ÞVÍ Í ÁR? TILHUGSUNIN UM SÓL, KOKTEILA OG BÚÐIR ER YFIRÞYRMANDI!
HÉR MEÐ LÝSI ÉG ÞVÍ YFIR AÐ ÉG ÆTLA Á NÆSTA ÁRI OG ÞAÐ ER EINS GOTT AÐ EINHVERJIR GETI KOMIÐ MEÐ MÉR!
ÉG VEIT AÐ ÖLL FÆRSLAN ERU HÁSTAFIR EN ÉG VERÐ BARA AÐ ÖSKRA ÞETTA ÚT EINHVERNVEGINN.
Kveðja, Sigrún "skynsama" a.k.a. FÁVITI!
09. júlí 2006 klukkan 05:14
Sigrún Jóhannsdóttir 4 athugasemdir
Alveg magnað hvað lífið getur tekið miklum straumhvörfum! Um helgina fannst mér ég í fyrsta sinn orðin gömul. Eins og fram kemur í fréttum voru 70% af þeim sem heimsóttu færeyska daga 16-17 ára og þar með ætti tilgangur þessara orða að vera ljós. En það var þrælskemmtilegt og að sjálfsögðu skipti þar góður félagsskapur höfuðmáli!
"Ég er orðin svo full að ég stend ekki í augun!" -Hermína að hrasa lítillega síðla kvölds
"Veðrið er svo gott að það bærist ekki hár á fingri!" -Undirrituð
"Hva, ég hef nú dýpt kleinum og öllum fjandanum í kakóið!" -Undirrituð í "ég hef aldrei"
Einnig kom orðið fermingarsystir fyrir í annarri hverri setningu.
Fleira markvert var: Jónsi í svörtum fötum, það bara er ekki hægt að dásama þann dreng nóg, drama drama drama sem ég varð vitni að seint um nótt og innihélt stelpubarsmíðar og ölvunarakstur, klósettið og sturtan heima hjá Hjalta-badvinir.is, og fleira og fleira.
Einnig ber kannski að geta þess að ég er orðin stálslegin í framan og til í tuskið!
03. júlí 2006 klukkan 02:21
Sigrún Jóhannsdóttir 6 athugasemdir